
Á meðan bílaframleiðendur eins og TVR þráast við og sleppa hefðbundnum öryggisbúnaði eins og líknarbelgjum, ABS og spólvörn, sýna nýjar tölur frá Bandaríkjunum að spólvörn sé á meðal gagnlegustu hjálpartækja í nútíma bifreið.
Reyndar hafa áhrif virks (Active) öryggisbúnaðar verið slík að NHTSA (National Highway Traffic Safety Administration) í Bandaríkjunum hefur tekið þá ákvörðun að leggja áherslu á að almenningur kaupi bíla sem geta komið í veg fyrir óhöpp í stað þess að leggja áherslu á bíla sem geta bjargað þér þegar þú lendir í óhappi.
Þetta þýðir í raun og veru að NHTSA telur virkar öryggisvarnir í bílum skipta meira máli en óvirkar (Passive) þegar kemur að því að bjarga lífi og limum.
Þessi stefnubreyting er byggð á nýlegri könnun sem leiddi í ljós að spólvörn (ESP) er sérlega áhrifarík í því að draga úr óhöppum en líkurnar á því að lenda í óhappi á fólksbíl eru 35% minni en á bíl sem ekki er með þessum búnaði. En tölurnar verða ennþá meira sláandi þegar eingöngu er horft á jeppa og jepplinga en þá minnka líkurnar á óhappi um hvorki meira né minna en 67%! Þessi tala er athyglisverð í ljósi þess að því hefur gjarnan verið haldið fram af landanum að jeppar og jepplingar séu síst óöruggari en fólksbílar.
Kerfið virkar þannig að það grípur inn í þegar ökumaðurinn gerir mistök og eru þessi kerfi svo ótrúlega næm í sumum bílum að það mætti halda að bíllinn hefði yfirskilvitlega skynjun, því gjarnan grípa þessi kerfi inní áður en gamanið kárnar.
Það er mikið sóknarfæri á þessu sviði í Bandaríkjunum þar sem aðeins 7.9% seldra nýrra bifreiða eru með spólvörn en í Evrópu hafa þessi kerfi náð að festa sig í sessi og er talið að um 40% nýrra bifreiða í Evrópu séu með þessum búnaði. Munu TVR menn játa sig sigraða?
Maður vaknar á undan vekjaraklukkunni á morgnanna, ferskur sem túnfífill, drífur í sig kaffibollann og ristaða brauðið og lítur með eftirvæntingu á milli Morgunblaðsins og bíllykilsins sem liggur á eldhúsborðinu.
Lesa áfram »
Áttundi áratugurinn var síðasta blómaskeið sportbílanna, Ferrari, Porsche og Lamborghini voru allir með framandi bíla í framleiðslu og sölutölur jukust sífellt...
Lesa áfram »
Hljómar eins og bílaleiga á ensku en er ekkert því skylt. Rennt ál hefur lengi þótt við hæfi þar sem mælar og tæki þurfa sterklegt en glæsilegt umhverfi...
Lesa áfram »