Um Blýfót

Blýfótur er óháð vefrit, stofnað til þess að bjóða upp á fréttir og fjölbreytt greinaskrif um flest sem viðkemur bílum. Að vefnum standa menn með brennandi bílaáhuga og skoðanir í takt. þessir þættir setja stefnu Blýfótar og aldrei verður djúpt á skoðanir ritstjóranna.

Fréttir - er að finna á forsíðunni. þar er allt styttra efni sem tengist líðandi stund, þar á meðal ritstjórnarpistlar, aðrar hugrenningar Blýfætlinga og skoðanir þeirra á efni fréttanna. Eldri fréttir má nálgast á forsíðunni undir titlinum Fréttasafnið.

Greinar - geta fjallað um allt mögulegt, svo lengi sem það tengist bílum á einhvern hátt. Greinarnar eru almennt lengri og ýtarlegri en aðrir pistlar á Blýfæti. Reynsluakstursgreinar tilheyra þessum flokki.

Molar - er safn smágreina sem eiga það sameiginlegt að hafa mjög þröngt efnisval, eins og til dæmis umfjöllun um ákveðna gerð af felgu.

Spjall - vísar lesendum yfir í klúbbhús Blýfótar. Á spjallborðinu okkar er hægt að ræða um bíla, Blýfót og allt annað sem gestum dettur í hug.

Ritstjórn:

Karl Gunnarsson

karl@blyfotur.is

Ingvar Örn Ingvarsson

ingvar@blyfotur.is

Í ólaunuðu leyfi frá störfum fram til loka ágústmánaðar til þess að sinna störfum sem umsjónarmaður bílablaðs Morgunblaðsins.


Helgi Páll Einarsson

helgi@blyfotur.is