«  Á brautinni  -  Kvartmílukvöld MBKÍ 9. júlí 2010

MBKI
Innlegg: Mið Júl 07, 2010 10:21 am Svara með tilvísun
Fyrsti gír Skráður: 07 Júl 2010 Innlegg: 1 Staðsetning: Ísland
Ágætu Blýfætlingar,

Mercedes-Benz klúbbur Íslands (MBKÍ) verður með Kvartmílukvöld föstudaginn 9. júlí.



Kvartmílukvöldið hefst kl. 20:00 og mun standa til kl. 23:00 (eða lengur ef vel viðrar Svalur ).

Brautin verður eingöngu opin fyrir Mercedes Benz bifreiðar og ganga félagsmenn í MBKÍ fyrir.
Þetta kvöld er í boði MBKÍ og því greiða félagsmenn, sem og velunnarar klúbbsins á spjallinu eða Facebook, engin gjöld.
Hér er því frábært tækifæri fyrir eigendur Mercedes-Benz bifreiða til þess að koma og prófa bílana sína á keppnisbraut Ofsakátur

Á eftirfarandi slóð má finna upplýsingu um staðsetningu brautarinnar:
http://www.kvartmila.is/wiki/index.php/Brautin

Kvartmílukvöldið er haldið í samstarfi við Kvartmíluklúbbinn.
Það er skilyrði að þeir sem keyra brautina verða að vera með hjálm!
Kvartmíluklúbburinn setur ekki skilyrði af sinni hálfu varðandi tryggingarviðauka en MBKÍ mælir með því við félagsmenn, og aðra sem áhuga hafa að taka þátt, að þeir athugi það hjá sínum tryggingarfélögum hvort viðauka sé krafist.

Nánari upplýsingar verða póstaðar undir viðburðir á spjallþræði klúbbsins ( http://www.stjarna.is/spjall/viewtopic.php?f=22&t=16750 ) sem og á Facebook síðu klúbbsins.

Nánari upplýsingar um Kvartmíluklúbbinn er að finna á :
http://www.kvartmila.is

_________________

Mercedes-Benz klúbbur Íslands
www.stjarna.is
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst Heimsækja vefsíðu sendanda

Sýna innlegg frá síðasta:  

Allir tímar eru GMT
Blaðsíða 1 af 1
Senda inn nýjan spjallþráð

  

Þú getur ekki sent inn nýja spjallþræði á þessar umræður
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum
Þú getur ekki breytt innleggi þínu á þessum umræðum
Þú getur ekki eytt innleggjum þínum á þessum umræðum
Þú getur ekki tekið þátt í kosningum á þessum umræðum