| |
|
|
| Þórður A. |
Innlegg: Fim Júl 29, 2010 7:32 pm |
|
|
Fyrsti gír
Skráður: 04 Apr 2010
Innlegg: 1
|
Er búinn að vera að gera þennan upp í rólegheitunum. (smá copy/paste úr þræðinum inni á stjörnu http://stjarna.is/spjall/viewtopic.php?f=15&t=16782&start=0 )
Ég man ekki alveg hvenær ég keipti hann, en hann hefur staðið inn í skúr í smá tíma. Sótti hann til KEF með kerru.
Keipti hann með bilaða vél og ætlaði að skipta um hana. Hann var 200E. Mér stóðu nokkrar vélar til boða. m102 200e, m102 230e og svo vél úr 250D. Ég trassaði það bara alltaf að sækja þetta og endaði það þannig að ég sat uppi vélarlaus! Rúnar reyndi að koma til bjargar með vél, en svo kom það í ljós að hún myndi ekki passa. Þá voru góð ráð dýr. Rúnar tók upp símann og fann eina vél handa mér. Sú vél kom úr 230E og verður minn því 230e þegar að yfir lýkur.
Ég samdi um kaup á henni, hífði hana uppúr og sótti hana svo í gær. Vélin sem ég keipti var með dælu fyrir ASD og hleðslujafnara, sem betur fer. Bíllinn er nefninlega með ASD og ég var ekki að nenna því að færa dæluna á milli.
Eftir að ég sótti vélina fór ég í það að losa vélina sem var í bílnum mínum. Staðan núna er sú að hún er alveg laus fyrir utan 1 helvítis djöfulsinns andskotans bolta sem bara neitar að skrúfast út! Var byrjaður að tjakka vélina upp þegar ég tók eftir því að hann var en þá í. ARG! Ætla að skoða þetta betur á morgun. Kanski enda ég á því að láta skiptinguna síga niður að aftan.
Vélin sem ég keipti fer þó ekki í bílinn strax því ég þarf að skipta um undirlyftur og yfirfara hana áður en hún fer í bílinn. Prufaði að snúa henni aðeins og...hún snýst allavega
Bíllinn sjálfur var nokkuð ryðgaður og hef ég verið að sjóða í hann þegar ég hef tíma og nennu.
Hef engin framtíðarplön fyrir hann. Þó er ljóst að hann þarf einhverja sprautun að hluta allavega.
Þegar ég keipti hann var búið að skít mixa bætur fyrir ryð á ýmsum stöðum. Meðal annars hafði járn plata verið límkíttuð undir ryðgat og sparslað yfir. Ég skar ryðið úr og sauð í...á eftir að sjóða slatta samt...
Bíllinn er/var með aircon, en eftir að ráðfæra mig við benz sérfræðing ætla ég að taka það úr honum...skemmdi líka rafmagns kælinn fyrir það...alveg óvart reyndar.
Jæja, myndir:
Hann er allur út í kókaíni eftir að kókaín verksmiðjan mín sprakk
Hérna er ég að klára að losa allt frá.
Flottur litur, en illa sprautaður. Hefur verið einhver bílskúrssprautun.
Vélarsalurinn eins og hann er núna. Gamla vélin en þá í.
Vélin sem fer í. Hún hangir þarna í vélagálga, en er komin á vélastand núna.
Tómur vélasalurinn á bílnum sem ég tók vélina úr!
Bætt við:
Jæja, náði þessum bolta úr og hélt gleðinni áfram.
Hífði vélina upp...
Svona er vélasalurinn núna...
JEPPI!
Svo tók ég vatnsdæluna af...á ekki að vera pakning á milli hennar og vélar???
Bætt við:
Er að pæla í því hvað ég þarf að gera.
Hlutir sem mig vantar/skipti um eru:
Húdd lamir
Frambretti bílstjóra meginn
Bensín slanga + dæla
Aftur stuðari
Hugsanlega fram farþega hurð, gæti þó reddað henni ef ég legg mikið í það... - reddað
Plastið inn í grillið
Lok á framstuðarann
Stefnuljós að framan - annað komið
Afturljós - líklegast reddað
Olíupönnu (sú sem er á vélinni passar, en er ekki rétt)...held þó að Rúnar reddi henni fyrir mig - Reddaði þessu með því að smíða hlíf á þá sem fyrir var.
Skottlok - Keipt og komið á!
Er líka að pæla í að skipta um lit. Litir sem koma til greina eru:
568 signal red - Kemur sterklegast til greina eins og er.
372 dökk blár
814 blá grænn
540 Barolo red (orginal liturinn)
366 azurite blue
862 drapplitaður
870 drapplitaður
804 Grænn, væri flottur en ill seljanlegur þannig
Og svo eru alltaf nýjir litir að detta inn í kollinn á mér... Er ekki viss um að þessi litanúmer séu rétt
Var að gæla við það að gera hann facelift...en held að ég sleppi því
Hann þyngist með hverjum deginum núna! Er alltaf að sjóða í og bæta hann! Vonandi verður hann sem næst riðlaus þegar ég klára hann...
Þýðir voða lítið að koma með mynda-update þar sem hann lúkkar alveg eins og á síðustu myndum
Bætt við:
Staðan eftir daginn í dag er sú að ég kláraði að sjóða í innra brettið farþega meginn... Á þó eftir að búa til festingu og sjóða hana við til þess að festa fram stuðarann. Ég byrjaði líka að pússa fram stuðarann upp og sparslaði smá í hann.
Svo gerði ég við hurðina sem ég var ekki viss hvað ég ætlaði að gera með.
Hurðin var svona:
Ég skar þetta stykki úr öðrum bíl og svo líka úr mínum. Púnkt sauð það svo til að byrja með:
Eftir að ég var búinn að stilla allt rétt af byrjaði ég að sjóða...tók ekki mynd af því en svona lúkkaði þetta:
Svo var það aðal testið! Get ég skrúfað rúðuna upp og lokað eðlilega???
Yubb, allt í fína með þetta!
Klára að sjóða þetta á morgun...nenni bara ekki meiru í dag!
Bætt við:
Gerði eitthvað í dag.
Komst líka að því að mér finnst boddý vinna vera mikið skemmtilegri en vélavinna!
Spændi upp ryði sem var þarna og sparslaði í það:
Sparslaði svo yfir suðuna...átti ekki trefja sparsl þannig ég notaði eitthvað sparsl sem á að vera frekar "flexible" eða auðbeyganlegt rsum...
Pússaði svo allt niður:
Sprautaði smá grunni yfir þetta en var ekki sáttur því ég notaði heldur grófann sandpappír og það sáust smá för eftir hann:
Notaði þá nýja sparslið mitt (sbr fyrri færslu) sem er eitthvað "glaze" dót...gert til að fjarlægja svona för og aðrar litlar ófullkomnur:
Byrjaði einnig á því að smíða í afturbrettið. Sjáið eflaust að þetta er allt skakt hjá mér enda helst þetta bara á 1 punktsuðu. Festi þetta rétt á morgun:
Svo kláraði ég að sparsla í innrabrettið farþegameginn. Búinn að sjóða allt þar, utan festingu fyrir framstuðara. Búinn að pússa sparslið niður núna:
Þarf svo að tækla innra brettið bílstjóra meginn einhverntímann...er ekki að nenna því strax Það er þó mun betra hérna meginn heldur en það var hinumeginn:
Þarna er eflaust kíló af sandi. Var um 1-2 kíló hinumeginn!!! :
Var búinn að gera þetta sæmilegt en er ekki sáttur...hugsa að ég endi á því að spæna öllu sparslinu aftur upp og byrja upp á nýtt..:
Smá suðuvinna eftir í afturbrettinu farþega meginn. Hugsa að ég sjóði bara bót í götin...ekkert að hafa þetta tvöfallt eins og það er orginal...skiptir líka voðalega litlu máli:
Náði svo í nýtt skottlok á hann. Var reyndar örlítið verra en ég bjóst við, þó mikið betra en það sem var á! Verður lítið mál að redda þessu skottloki. :
Er einhver með góða lausn á því að ná skrúfunum upp úr lömunum? Datt 1 hvoru meginn niður í þetta! Arg! :
Gekk svo sona frá honum í kvöld. Tek þráðinn upp á morgun!
Bætt við:
Lítið búinn að gera í þessum. Sauð svolítið í afturbrettið en varði það ekkert gegn vatni og vindum. Svo fór að rigna...ohhhhhhhhhhh
Vantaði hlíf sem festist á blokkina og fer utan um sving hjólið en hún var ekki innbyggð í pönnuna eins og hún var á vélinni sem var í bílnum. Ætlaði að fá nýja olíupönnu, en ákvað að skoða þetta aðeins nánar.
Endaði á því að skera þetta af gömlu pönnunni og fittaði þetta svo á vélina. Allt passaði og ég þarf ekki að skipta um pönnu! Jess!
Nú er það eina, (að ég held) sem ég á eftir að gera áður en vélin fer í, að kaupa pakkningarlím og festa vatnsdæluna á almennilega. Æjj jú svo var búið að skrúfa eitthvað dót af innspítingunni, þar sem kapallinn frá bensíngjöfinni festist, af þannig ég þarf að færa það yfir. Svo á ég eftir að finna 1 sensor og stilla kveikjuna (endurtek, er einhver með upplýsingar um það hvernig ég geri það...líður svolítið illa með að vera alltaf að rúlla við hjá doktorinum að fá ráð hehe).
Ég ákvað það svo í dag að hann verður ekki í þessum lit. Sá 1 svona 230e alveg heilann og góðann í þessum lit og fílaði hann ekki. Er að hugsa um einhver SVONA lit, allur samlitaður.
Sjáum hvað gerist.
Bætt við:
Jæja, vélin er komin í!
Næsta skref er að tengja hana og koma henni í gang.
Kem með myndir á morgun ef ég man eftir því.
Bætt við:
Búinn að tengja alveg slatta af snúrum! En djöfull er samt mikið af dóti þarna sem ég hef ekki hugmynd um hvert á að fara! Fullt af vacuum slöngum og öðru dóti.
Ætlaði að vera ógeðslega sniðugur og skoða bílinn hjá bróðir mínum, sem er 230e með ASD, nema hvað að hann er ekkert með sömu skynjara og minn...ohhhh...græddi lítið á því, en þó eitthvað.
Komst einnig að því að einhver snúra, sem ég reif óvart úr bílnum þegar ég tók vélina úr, var pikkbarkinn í skiptinguna...festi hann aftur við tækifæri. |
|
|
| Til baka efst á síðu |
|
| Benzari |
Innlegg: Fim Júl 29, 2010 10:33 pm |
|
|
Blýfætlingur
Skráður: 21 Sep 2004
Innlegg: 1096
Staðsetning: Reykjavogur
|
|
| Til baka efst á síðu |
|
| bebecar |
Innlegg: Fös Júl 30, 2010 9:54 pm |
|
|
|
Blýfótur
Skráður: 12 Ágú 2004
Innlegg: 6343
Staðsetning: Álaborg
|
Úfff maður.... flott að stússast í þessu annars.
Ég þarf einmitt að fara að sjóða smotterí í Ölfuna áður en henni er raðað saman en vantar græjurnar. |
_________________ Alfa Romeo Duetto 1967
BMW R100RS (RennSport) 1994
Range Rover 4.6 HSE 1997 (P38)
Ingvar Örn |
|
| Til baka efst á síðu |
|
|
|
Allir tímar eru GMT
|
|
Þú getur ekki sent inn nýja spjallþræði á þessar umræður Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum Þú getur ekki breytt innleggi þínu á þessum umræðum Þú getur ekki eytt innleggjum þínum á þessum umræðum Þú getur ekki tekið þátt í kosningum á þessum umræðum
|
|
|