BlýfóturSkráður: 12 Ágú 2004Innlegg: 4375Staðsetning: Sverige
Veit ekki afhverju þetta flaug í hausinn á mér núna. Þetta er samt alls ekki óskylt bíladellunni og mig grunar að mörgum sem koma hingað finnist svona græjur líka spennandi.
Ég var sem sagt með svakalega flugdellu þegar ég var krakki. Auðvitað fannst mér sumar flugvélar flottari en aðrar og meðal þess sem mér fannst laaaaang flottast voru Mooney flugvélarnar. Þær voru svona eins og GT sportbíll meðal eins hreyfla flugvéla. Alltaf meðal þeirra hraðskreiðustu, ef ekki þær hraðskreiðustu, og ekki bara vegna afls heldur líka vegna straumlínu.
Ég fíla eiginlega gömlu 201 (nafnið komið af hraðanum í mílum ) einna best því á þeim voru gluggarnir ennþá kantaðir:
Nýju vélarnar eru ekkert slor heldur. Mooney Bravo GX (gömlu nöfnin voru samt miklu svalari!):
Þessi hefur hámarkshraða nálægt 400 kmh og með flugdrægið sem hún hefur hefði kappflug Hamsturins og Captain Captain Slow á móti akstri Jezza Clarkson kannski farið öðruvísi
Einhverjar voru framleiddar með Porsche mótor (flat six of course!):
Pabbi átti hlut í Socata Rallye líkri þessari þegar ég var patti
Fallegar og liprar vélar. Stór partur af svalheitunum var að canopy-inu var rennt aftur til að komast í vélina svona eins og á Spitfire. Svo voru stýrin joystick en ekki „hjól“. Fékk nokkrar skemmtilegar flugferðir í svona.
Og til að sýna smá bíla-flugvéla tengsl:
Colin Chapman flaug sjálfur
_________________ Karl Gunnarsson
Daniel Jalkut skrifaði:
My own design knowledge is bare-to-middling, but I know when something looks like ass.
Þú getur ekki sent inn nýja spjallþræði á þessar umræður Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum Þú getur ekki breytt innleggi þínu á þessum umræðum Þú getur ekki eytt innleggjum þínum á þessum umræðum Þú getur ekki tekið þátt í kosningum á þessum umræðum