«  Bílar Blýfætlinga  -  Verkefni vetrarsins

Sira
Innlegg: Lau Sep 01, 2007 8:33 pm Svara með tilvísun
Fjórði gír Skráður: 19 Mar 2006 Innlegg: 169 Staðsetning: Skagafjörður
Eru menn eitthvað að fara að taka bíla til uppgerðar eða lagfæringa fyrir veturinn. Hvað er í gangi í bílskúrunum hjá Blýfætingum.
Gaman væri að sjá það..
Einhverjir hljóta luma á einhverju.

_________________
Subaru Legacy Wagon 2001
Nissan Sunny 1600 1991
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst Senda póst
zazou
Innlegg: Sun Sep 02, 2007 2:33 pm Svara með tilvísun
Blýfætlingur Skráður: 31 Ágú 2004 Innlegg: 1731 Staðsetning: London UK
Draslið komið heim í skúr Svalur
http://www.blyfotur.is/viewtopic.php?t=2230&start=39

_________________
Brynjar
former cars:
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst
SiggiR
Innlegg: Sun Sep 02, 2007 6:31 pm Svara með tilvísun
Fjórði gír Skráður: 12 Des 2005 Innlegg: 192 Staðsetning: Selfoss
Þegar maður á bara druslur er alltaf eitthvað að ske í skúrnum Hlær

Fyrst og fremst er það rallíbíllinn. AE86 corolla. Það er ein keppni eftir í sumar, 29. sept, en eftir hana verður hann tekinn á hús og tíndur í sundur. Stefni á að skipta um allar pakkningar í vél, skipta um kúplingu og eitthvað af fóðringum. Svo þarf sennilega að sjóða eitthvað í burðarvirki þar sem aldurinn er farinn að segja til sín.


Svo er það langtímaverkefnið. Suzuki Samurai soft top. Þar þarf að fara yfir allt kram og leysa úr blöndungsvandræðum sem hafa hrjáð hann lengi. Svo, ef tími vinnst til, þarf að byrja að laga boddíið þar sem hann er vægast sagt illa farinn. En það verður bara svona með.. Ef ég á pening Sneypulegur

Að lokum er það daily-inn, Toyota Tercel. Ég þarf að swappa framhjólabúnaðinum úr varahlutabílnum í hann komplett, laga afturbremsur og skipta um púst. Í leiðinni ætla ég að gera afturdrifinn Tercel Svalur (öxlarnir úr!)

_________________
Subaru Outback
Toyota Corolla GTi AE86 - Rally
Suzuki SJ413

No guts, no glory
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst MSN Skilaboð
Hlynzi
Innlegg: Mán Sep 03, 2007 9:35 pm Svara með tilvísun
Blýfætlingur Skráður: 16 Sep 2004 Innlegg: 1071 Staðsetning: Grafarvogur
Ef ég fæ skúr, sem ég býst fastlega við ætla ég að slípa svarta E420 benzann duglega, heilsprauta tækið, skella AMG sílsunum undir og laga smámál sem eru eftir.

_________________
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, sílsar í vetur og fl.mestmegnis AMG
Toyota Corolla '93, Mercedes Benz - 230E x 4 , Volvo 740 GL , Subaru Justy - 4x4
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst Senda póst Heimsækja vefsíðu sendanda MSN Skilaboð
HelgiS.J
Innlegg: Mán Sep 03, 2007 9:49 pm Svara með tilvísun
Sjötti gír Skráður: 17 Okt 2004 Innlegg: 679 Staðsetning: Með viský í annari og vindil í hinni
Ég hef þetta bara stutt. Ætlunin hjá mér er það að láta sprauta fyrir mig 1.stk. brettakant og þar með er verkefni vetrarins búið Sneypulegur

_________________
Hyundai Terracan MY 03
Honda Accord MY 89
SAAB 99 MY 81
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst Senda póst Heimsækja vefsíðu sendanda MSN Skilaboð
Benzari
Innlegg: Mán Sep 03, 2007 11:47 pm Svara með tilvísun
Blýfætlingur Skráður: 21 Sep 2004 Innlegg: 1096 Staðsetning: Reykjavogur
Setja barnið reglulega í gang og dusta rykið af.

Halda flota heimilisins þokkalega sjæní.

_________________
'87 Porsche 944
'95 Benz E220
'98 Nissan Micra
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst Senda póst Heimsækja vefsíðu sendanda
Ichiro
Innlegg: Þri Sep 04, 2007 10:39 am Svara með tilvísun
Fimmti gír Skráður: 01 Sep 2004 Innlegg: 265 Staðsetning: Reykjavík
http://www.blyfotur.is/viewtopic.php?t=3737&start=0

Vetrarverkefnið verður að setja þennan á 35" dekk, en planið er að hafa hann á 35" negldum á veturnar og síðan á 33" á sumrin, betra upp á eyðslu og slíkt. Ég er búinn að redda mér brettakönntum og dekkjum á felgum þannig að þá er ekki margt eftir.

Planið er að kippa honum inn, laga ryð og annað sem farið er að sjást í, bæta svo sem eitt gat í gólfinu á honum og annað smálegt. Þessi er notaður sem ferðabíll og er fínn sem slíkur auk þess sem ég skottast á honum í vinnu og svoleiðis.

Kveðja
Þórir

_________________
Volvo V50 1,6d 2005.
Yamaha FZ1 2001
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst Senda póst
sindrib
Innlegg: Þri Sep 04, 2007 9:55 pm Svara með tilvísun
Blýfætlingur Skráður: 31 Ágú 2004 Innlegg: 1019 Staðsetning: Fáskrúðsfjörður
ég vara að fá stratusinn sem geysir var að selja, ætli maður fari ekki út í sjálfskiptingar skipti í vetur..

_________________
Sindri Bessason
mmc colt 1992
dodge ram van 350 custom
1997 Toyota Carina (í notkun)
Já það er kreppa hjá mér...
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst
geysir
Innlegg: Mið Sep 05, 2007 11:23 am Svara með tilvísun
Blýfætlingur Skráður: 02 Sep 2004 Innlegg: 2275 Staðsetning: RVK eða Geysir.
Ég fékk Patrolinn hans Sindra og það er smá ryð sem þarf að dútlast í, festa brettakant og mála stuðara.
Síðan er bara annaðhvort að eiga eða selja.

_________________
1999 BMW E46 316 - Vélaskipti.
1998 Nissan Primera GX
1994 M.Benz E280 - Ónýtur (árekstur)
Jeremy Clarkson
Tilvitnun:
Slow drivers — they’re all exceedingly dull and they’re all murderers.
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst Senda póst MSN Skilaboð
Fjarki
Innlegg: Mið Sep 12, 2007 1:29 am Svara með tilvísun
Blýfætlingur Skráður: 26 Okt 2004 Innlegg: 1008 Staðsetning: Kópavogur
Hjá mér er planið að koma einu stk nýjum Hilux á 38" hjólbarða, verkefnið fer hægt af stað enda bíllinn ekki mættur á svæðið mér til mikillar armæðu. En ef allt stenst þá ætti hann að verða svo til fullbreyttur seinnipart næsta mánaðar ef allt gengur æðislega. Hvenær gerist það svosem. Hlær

Góðar stundir

_________________
Kristján
http://www.flickr.com/photos/straumur/
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst Heimsækja vefsíðu sendanda
íbbi
Innlegg: Fim Sep 13, 2007 2:16 am Svara með tilvísun
Sjötti gír Skráður: 19 Sep 2004 Innlegg: 998
ég er bara ennþá að smíða minn camaro




_________________
99.Camaro Z28, LS1/M6
96.M.Benz E230 Avantgarde
02.M.Benz AMG C32 kompressor
02.BMW 540i Mtech individual
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst

Sýna innlegg frá síðasta:  

Allir tímar eru GMT
Blaðsíða 1 af 1
Senda inn nýjan spjallþráð

  

Þú getur ekki sent inn nýja spjallþræði á þessar umræður
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum
Þú getur ekki breytt innleggi þínu á þessum umræðum
Þú getur ekki eytt innleggjum þínum á þessum umræðum
Þú getur ekki tekið þátt í kosningum á þessum umræðum