«  Ökutæki til sölu  -  SELDUR - BMW Z3 - Daytona Violet

A.H.
Innlegg: Sun Júl 29, 2012 9:54 pm Svara með tilvísun
Annar gír Skráður: 19 Jún 2005 Innlegg: 41 Staðsetning: Grafarvogur
Til sölu er BMW Z3.
Nýskráður 12.08.1998.
Ekinn tæplega 173.000 km.
Nýskoðaður í lok maí 2012.
Upphaflega fluttur til landsins af B&L.
Skráður grænn á litinn – var síðar sprautaður í öðrum lit.
Ég lét sprauta allt ytra byrði í september 2008 (nokkrum dögum fyrir bankahrun) í litnum Daytona Violet. Sezar hér á BMWkrafti sá um þá vinnu. (Nokkrum árum áður hafði hann verið sprautaður í svipuðum lit af fyrri eiganda.)
Í bílnum er 1800 vél, sem er með tímakeðju.
Eiginþyngd án ökumanns er skráð 1.180 kg.
Rafmagn í rúðum og speglum.
Leðursæti.
ABS og spólvörn.
Í bílnum er geislaspilari og fylgir hann með við kaupin.

Til að koma í veg fyrir misskilning má loks geta þess að á götunni virðist vera einn annar BMW Z3 í sama eða sambærilegum lit (sá er reyndar með krómlista við framrúðu og handföng). Hér er sem sagt ekki um þann bíl að ræða.

Það er fátt skemmtilegra á góðum sumardegi en að skella niður blæjunni og rúnta um bæinn í góða veðrinu Svalur Bíllinn er þéttur og höndlar vel, sbr. einkum nýjar spindilkúlur og fóðringar.

Ég er nýbúinn að láta framkvæma eftirfarandi viðhald (apríl og maí á þessu ári):
Tvær spindilkúlur + fóðringar.
Einn gormur + dempari.
Bremsuslöngur báðum megin að framan.
Skipt var um viftureim.
Gert við púst – þar sem í ljós kom við skoðun á bifreiðinni að það pústaði út einhvers staðar í pústkerfinu. Skipt var um þann hluta pústsins.

Í samræmi við þetta er bíllinn með fulla skoðun.

Bíllinn var smurður nú í lok júlí (einnig skipt um loftsíu).

Þekktir annmarkar:
Hliðarspegill á bílstjórahlið er frekar laus en hefur verið límdur á. Mér skilst að það þurfi að kaupa nýjan spegil ef gera á almennilega við þetta.
Gler í þokuljósi bílstjóramegin neðst á framstuðara er brotið.
Tvær rispur eru á framstuðara.
Bifreiðin er hvorki skráð í slysaskrá né tjónaskrá EN einhvern tímann heyrði ég að þessi bíll hefði líklega lent í tjóni fyrir þann tíma er ég átti bílinn.
Gormur bílstjóramegin að aftan er hugsanlega brotinn.

Ég er búinn að eiga og nota þennan bíl í tæplega fimm ár og hann hefur reynst mér vel allan þann tíma. Ég minni þó á að hér er verið að selja bifreið sem kom á götuna fyrir tæplega 14 árum síðan.

Verð:
SELDUR

Læt eina mynd frá 2009 fylgja með (eina myndin sem ég á af bílnum - hann er ekki á sömu felgum í dag, en þær geta hugsanlega fylgt). Annars er auðvitað best að skoða hann með berum augum... Hugljómun


Síðast breytt af A.H. þann Mið Ágú 15, 2012 4:27 pm, breytt 1 sinni samtals
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst
A.H.
Innlegg: Þri Ágú 07, 2012 10:18 pm Svara með tilvísun
Annar gír Skráður: 19 Jún 2005 Innlegg: 41 Staðsetning: Grafarvogur
Jæja, ég skrapp út í dag og tók nokkrar myndir:











Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst

Sýna innlegg frá síðasta:  

Allir tímar eru GMT
Blaðsíða 1 af 1
Senda inn nýjan spjallþráð

  

Þú getur ekki sent inn nýja spjallþræði á þessar umræður
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum
Þú getur ekki breytt innleggi þínu á þessum umræðum
Þú getur ekki eytt innleggjum þínum á þessum umræðum
Þú getur ekki tekið þátt í kosningum á þessum umræðum